
Eins og við greindum frá í gær lyftu Þórsarar sér upp í 6.sæti Inkasso deildarinnar í fótbolta þegar liðið vann öruggan 3-0 sigur á HK á Þórsvelli.
Varnarmennirnir Aron Kristófer Lárusson og Loftur Páll Eiríksson sáu um að koma Þórsurum tveim mörkum yfir áður en markahrókurinn Jóhann Helgi Hannesson gulltryggði sigurinn tæpum stundarfjórðungi fyrir leikslok.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Heimasíða Þórs var að sjálfsögðu á staðnum og tók saman það helsta úr leiknum.










