Facebook síða Vaðlaheiðarganga birti nú í kvöld myndband þar sem ekið var í gegnum göngin. Myndbandið er sýnt á fjórföldum hraða en keyrt var frá Fnjóskadal til Eyjafjarðar í myndbandinu.
Um 70 manns vinna nú hörðum höndum að því að ljúka framkvæmdum við göngin.
Verklok eru áætluð 30. nóvember næstkomandi og eiga göngin að opna fyrir almenna umferð þann 1. desember næstkomandi.
UMMÆLI