Slökkviliðið á Akureyri var kallað út vegna sinuelds sem kviknaði í Eyjafirði, við laugaland, á sjötta tímanum í dag. Um hálftíma tók að ráða niðurlögum eldsins. Þetta kemur fram á vef mbl.is í kvöld.
Þar er haft eftir Friðriki Jónssyni, varðsstjóra á vakt hjá Slökkviliði Akureyrar, að eldurinn hafi breitt töluvert úr sér og að veðurskilyrði hafi verið vel til þess fallin.
„Það er vindur og allt mjög þurrt. Við sendum dælubíl á staðinn sem tókst að slökkva þennan eld tiltölulega auðveldlega,“ sagði Friðrik í samtali við mbl.is.