Sinubruni er við Lundeyri á Akureyri skammt austan við Þverholt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra.
Lögreglan hvetur íbúa í nágrenninu til þess að loka gluggum þar sem mikinn reyk hefur lagt yfir hverfið.
Uppfært 11:50: Búið er að slökkva eldinn sem kom upp. Slökkvilið Akureyrar var fljótt á svæðið og greiðlega gekk að slökkva eldinn.