Framsókn

Símenntun HA tekur við námi í áfengis-og vímuefnaráðgjöf

Símenntun HA tekur við námi í áfengis-og vímuefnaráðgjöf

Símenntun Háskólans á Akureyri mun taka við námi í áfengis- og vímuefnaráðgjöf af SÁÁ. Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður SÁÁ og Stefán Guðnason forstöðumaður Símenntunar HA skrifuðu undir samstarfssamning á dögunum.

Símenntun HA tekur við náminu af SÁÁ og mun bjóða upp á nám í fíkniráðgjöf með sveigjanlegu formi frá og með haustinu 2023.

„Við erum afar stolt af því að taka við þessu verkefni og hlökkum til að geta boðið upp á þetta nám sem hluta að ört vaxandi námsframboði hjá Símenntun HA,“ segir í tilkynningu frá Símenntun HA.

VG

UMMÆLI