MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Síldarvertíð er hafin hjá Samherja

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
birkir-hreinsson-skipstjori-1850
Ljósmynd: Samherji· kaffid.is

Vilhelm Þorsteinsson EA-11 kom til Eskifjarðar í gærmorgun með um 950 tonn af síld, sem er fyrsti farmur skipsins á nýhafinni síldarvertíð.

Skipið var að veiðum austur af landinu og gekk túrinn ágætlega, að sögn Birkis Hreinssonar skipstjóra á Vilhelm Þorsteinssyni, ef frá er talið leiðindaveður fyrri partinn. „Þetta voru tveir og hálfur sólarhringur, höfn í höfn, og þar af fór sólarhringur í brælu og leit. Það má því segja að við höfum verið að veiðum í einn og hálfan sólarhring. Við fengum aflann í fjórum stuttum holum,“ segir Birkir á vef Samherja.

Hann segir að hráefnið sé gott. „Þetta eru 350-360 grömm, meðalvigtin á þessu, góð blanda af norsk-íslenskri og sumargotssíld. Þetta er bara mjög góð síld og ætti að vera úrvalshráefni,“ segir Birkir.

Vilhelm Þorsteinsson kom til hafnar um klukkan átta í gærmorgun og var strax hafist handa við löndun úr skipinu. Hráefnið fer til vinnslu hjá Eskju.

„Alltaf gaman að veiða síld“

Birkir er bjartsýnn við upphaf síldarvertíðar „Já, það þýðir ekkert annað en að vera brattur. Nú vonum við bara það besta og að það bætist eitthvað í þetta. Það fer mjög eftir aðstæðum hvernig gengur að ná síldinni, það getur verið auðvelt en stundum er það mun erfiðara. En það er alltaf gaman að veiða síld,“ segir Birkir.

Landað var úr skipinu í gær og svo tekur við annar túr strax í kjölfarið. „Það verður væntanlega bara á svipuð mið, ætli við verðum ekki eitthvað hérna fyrir austan á næstunni,“ segir Birkir Hreinsson, skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni EA.

Upprunaleg frétt var birt á vef Samherja.

Tengdar greinar

Uppfært: 15. september 2026