NTC

Siguróli Sigurðsson fallinn frá

Siguróli Sigurðsson fallinn frá

Siguróli Sigurðsson heiðursfélagi KA féll frá í morgun en Siguróli var níræður. Siguróla er minnst á vef KA í dag þar sem segir að hann hafi verið sannarlega ómetanlegur sjálfboðaliði í starfi KA og að hann hafi markað djúp spor í sögu félagsins.

„Hann hóf ungur að vinna fyrir félagið og gerði það í raun alla sína ævi. Siguróli lék knattspyrnu með liði KA sem og liði ÍBA við góðan orðstír og gegndi svo sem stjórnarmaður í knattspyrnudeild félagsins. Siguróli var alltaf til í að gefa sig allan fyrir KA og var í lykilhlutverki við að koma af stað og byggja upp N1 mótið okkar sem er stærsta yngriflokkamót landsins í dag.

Á sínum efri árum hafði hann áfram daglega komu í KA-Heimilið þar sem hann hafði umsjón með kjallaraklúbbnum. Siguróla verður svo sannarlega sárt saknað og sendum við innilegar samúðarkveðjur til aðstandenda hans og vina,“ segir á vef KA.

Sambíó

UMMÆLI