Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fólk

Sigtryggur nýr formaður VG á Akureyri og nágrenni

Eftir Ingólfur Stefánsson·
sigtryggur-ellertsson-AK
kaffid.is

Sigtryggur Ellertsson var kjörin nýr formaður VG á Akureyri og nágrenni á aðalfundi félagsins 8. október síðastliðinn. Sigtryggur tekur við formennsku í félaginu af Ólafi Kjartanssyni sem hefur verið formaður í rúm 11 ár. Þett kemur fram í tilkynningu á vef VG þar sem Ólafi er þakkað fyrir góð störf og Sigtryggi er óskað til hamingju með formennskuna.

Sigtryggur er 32 ára og með fjölbreytta starfsreynslu en er nú vistvænn verslunareigandi og eigandi Vistvænu búðarinnar á Akureyri ásamt bróður sínum. Hann hefur lokið diplómanámi í bókhaldi hjá NTV og er að ljúka námi til sjúkraliða.

„Umönnunarstörfin hafa alltaf átt sérstakan stað hjá mér enda finnst mér fátt jafn gefandi og að vinna með fólki og geta lagt mitt af mörkum til að bæta líðan þess og daglegt líf.“ segir Sigtryggur á vef VG. Sigtryggur tók 4. sæti á lista VG á Akureyri í sveitarstjórnarkosningum í vor.

„Ég hef alltaf verið vinstra megin í stjórnmálum og lengi verið stuðningsmaður Vinstri grænna. Það var hins vegar ekki fyrr en í tengslum við sveitarstjórnarkosningar í vor sem ég ákvað að taka formlega þátt í starfinu og sé ég svo sannarlega ekki eftir þeirri ákvörðun.“

„Hvað framtíðarsýn varðar langar mig fyrst og fremst að leggja mitt af mörkum til að efla félagsstarfið og það góða samfélag sem er innan VG. Ég vil að starfið sé lifandi, að við fáum fleiri að borðinu, fólk finni sig velkomið og að við höldum áfram að skapa vettvang fyrir samtal og skoðanaskipti. Mér finnst jafnframt mikilvægt að rödd Vinstri grænna heyrist á Akureyri og að við tökum virkan þátt í umræðu um málefni bæjarins.“

Tengdar greinar

Uppfært: 14. október 2026