Sigþór Árni Heimisson í KA

Sigþór handsalar samninginn við formann hkd. KA
Mynd: ka.is

Sigþór Árni Heimisson, leikstjórnandinn knái, hefur tekið þá ákvörðun að leika með KA á næstu leiktíð.

Sigþór sem er fæddur árið 1993 hefur leikið með Akureyri Handboltafélagi frá árinu 2010 en hann er uppalinn í KA. Sigþór hefur leikið stórt hlutverk undanfarin ár með liði Akureyrar.

Sambíó
Sambíó