NTC netdagar

Siglufjarðargöng talin brýnustLjósmynd: RÚV – Andrea María Sveinsdóttir

Siglufjarðargöng talin brýnust

Að mati sveitafélaga á Norðurlandi eystra eru Sigufjarðarskarðsgöng mest áríðandi samgönguverkefnið en verkefnin voru listuð upp í Samgöngu- og innviðastefnu Norðurlands eystra. Áætlaður kostnaður ganganna væri um 19 milljarðar og yrðu þau 5,2 kílómetra löng úr Siglufirði yfir í Fljót.

Ekki nóg með það að göngin myndu stytta leiðina um 14 kílómetra heldur væru þau mikið öryggisatriði, RÚV greindi frá fyrst og haft er eftir þeim:

„Við fórum mjög rækilega í þetta mál og vorum þar með vinnuhóp. Og eftir ítarlegar umræður varð það niðurstaðan, í ljósi aðstæðna hér á svæðinu og hversu mikilvægt þetta er, bæði fyrir Fjallabyggð og ekki síst fyrir landsfjórðunginn allan, að þessi framkvæmd yrði sett í efsta sæti,“ segir Guðjón M. Ólafsson, bæjarfulltrúi í Fjallabyggð og stjórnarmaður hjá SSNE.

Stöðug vöktun er á Siglufjarðarvegi um Almenninga og óvissustig vegna jarðsigs er viðvarandi. Sigið er á fimm til sex kílómetra kafla og þar getur vegstæðið sigið um tugi sentimetra á ári. Og Vegagerðin er löngu hætt að reyna að halda klæðningu á verstu sigköflunum. „Hann allavega stenst ekki nútímakröfur. Það er alveg ljóst. Ég held að þú þurfir ekkert að keyra hann mjög oft til þess að sjá það.“

Siglufjarðarskarðsgöng eru númer tvö í jarðgangaáætlun stjórnvalda og miðað er við að framkvæmdir geti hafist eftir fjögur ár. Guðjón segir mikil vonbrigði að Alþingi náði ekki að afgreiða samgönguáætlun fyrir sumarfrí. Þar var gert ráð fyrir fjármagni í ákveðna undirbúningsvinnu.

„Það sem er verst fyrir okkur er að þetta setur stopp í ferlið. Af því að þegar þú ert að fara í stóra innviðauppbyggingu þá er undirbúningurinn ekkert síður mikilvægur heldur en framkvæmdin sjálf. Og ef þetta stopp varir lengi, ég hef nú alla trú á að þetta klárist á haustþingi ég trúi ekki öðru, þá líður tíminn og við fáum hann ekkert aftur.“

UMMÆLI

Sambíó