MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Síðustu Sumartónleikar sumarsins í Akureyrarkirkju

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Andrew-J.-Yang
kaffid.is

Sunnudaginn 26. júlí kl. 17 verða síðustu tónleikar sumarsins í tónleikaröðinni Sumartónleikar í Akureyrarkirkju haldnir.

Andrew J. Yang leikur á píanó ýmislegt dýrindi píanóbókmenntanna: verk eftir Brahms, Ravel, Chopin og Rachmaninof, og einnig sjálfan sig. Yfirskrift tónleikanna er Endurminning, en verkin hverfast um endurminningar og nostalgíu. Andrew bjó um þriggja ára skeið á Patreksfirði og stofnaði Píanóhátíð Vestfjarða. Nú er hann fluttur til Reykjavíkur og er stofnandi Píanóhátíðar í Reykjavík.

Sumartónleikar í Akureyrarkirkju eru haldnir í fertugasta sinn í sumar. Af því tilefni er nýtt verk pantað fyrir hverja tónleika og frumflutt þar. Andrew samdi nýtt píanóverk fyrir Sumartónleika og frumflytur það á sunnudaginn.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis, tekið við frjálsum framlögum og öll velkomin.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026