MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Síðustu skólaslit Árskógarskóla fara fram á fimmtudaginn

Eftir María Hjelm·
skoli-merktur-2016-minni
Mynd: Árskógarskóli· kaffid.is

Síðustu skólaslit í sögu Árskógarskóla fara fram fimmtudaginn 4. júní kl. 17.00 í Félagsheimilinu í Árskógi. Þetta kemur fram á vef Dalvíkurbyggðar.

Árskógarskóli er leik- og grunnskóli fyrir börn á aldrinum 12 mánaða og upp í 7. bekk í grunnskóla.

Í tilkynningunni segir að skólaslitin marki lok mikilvægs kafla í sögu sveitarfélagsins.

„Um er að ræða síðustu skólaslit Árskógarskóla og verður því viðburðurinn bæði hátíðlegur og sögulegur. Í gegnum árin hefur Árskógarskóli gegnt mikilvægu hlutverki í samfélaginu og verið vettvangur náms, þroska og vináttu fyrir fjölmargar kynslóðir nemenda. Við skólaslitin gefst tækifæri til að líta yfir farinn veg, minnast góðra stunda og kveðja skólann með virðingu og þakklæti.“

Nemendur, fyrrverandi nemendur, starfsfólk, foreldrar og aðrir velunnarar skólans eru hvattir til að mæta og taka þátt í tímamótunum.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026