MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Síðustu dagar sumaropnunar í Hlíðarfjalli um næstu helgi

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Screenshot 2023-09-07 at 14.28.27
kaffid.is

Síðustu dagar sumaropnunar í Hlíðarfjalli eru um næstu helgi. Nú er um að gera að nýta tækifærið og stunda holla og góða útivist í fjallinu áður en slökkt verður á Fjarkanum og undirbúningur hefst fyrir skíðavertíðina. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar

Margar merktar hjólaleiðir eru í Hlíðarfjalli og merkt gönguleið er frá Strýtuskálanum upp á fjallsbrún. Þaðan má sjá vítt og breitt um Norðausturland í góðu skyggni. Sjá nánar hér: https://www.hlidarfjall.is/is/fjallid

Sunnudaginn 10. september verður síðasta bikarmót ársins í Fjallabruni Greifans á hjólum. Mótið hefst kl. 13 og eru áhugasamir hvattir til að mæta í Fjallið, fylgjast með og hvetja keppendur til sigurs. Sjá nánar hér: https://netskraning.is/dh-hlidarfjall/

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026