Ljósmynd: Síðuskóli

Síðuskóli hlýtur umhverfisverðlaun Terra

Síðuskóli hlaut umhverfisverðlaun Terra fyrir árið 2025. Verðlaunin hlýtur eitt fyrirtæki eða stofnun sem sker sig úr hvað varðar flokkun úrgangs ár hvert. Samkvæmt umsögn frá Terra varð Síðuskóli fyrir valinu vegna þess að marktækur munur er á flokkun á úrgangi sem kemur frá skólanum miðað við aðrar stofnanir og fyrirtæki sem Terra þjónustar. Með þessu vonar Terra að verðlaunin verði Síðuskóla enn frekari hvatning og þau séu ekki síður hvetjandi fyrir aðrar stofnanir bæjarins sem vilja gera enn betur í sínum umhverfismálum. Helgi Pálsson, rekstrarstjóri Terra, og Kristbjörn Viðar Baldursson, sölu- og þjónustustjóri Terra, afhentu skólastjóra skjal til staðfestingar ásamt blómvendi.

„Við í Síðuskóla erum að vonum stolt og ánægð með þessa viðurkenningu enda hefur skólinn verið Grænfánaskóli síðan 2006 og mikil áhersla lögð á að virðing fyrir umhverfinu sé sjálfsagður þáttur í öllu okkar skólastarfi,“ segir á vef Síðuskóla.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!