Sex sæmd gullmerki FÍ á afmælisári Ferðafélags Akureyrar
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Síðastliðinn laugardag var árleg Sviðamessa Ferðafélags Akureyrar haldin í Ljósvetningabúð í Kaldakinn. Þar voru sex einstaklingar sæmdir gullmerki FÍ. Ferðafélag Akureyrar fagnar 90 ára afmæli sínu á þessu ári. Greint er frá á Facebook-síðu Ferðafélags Akureyrar í dag.
Þau Einar Hjartarson, Fjóla Kristín Helgadóttir, Grétar Grímsson, Haukur Ívarsson, Hjalti Jóhannesson og Ólöf Tryggvadóttir voru sæmd gullmerkinu. Þau eru öll ötulir félagsmenn Ferðafélags Akureyrar og hafa verið til margra ára.
Gullmerki FÍ er veitt þeim einstaklingum sem hafa með einum eða öðrum hætti unnið einstakt starf á vettvangi Ferðafélagi Íslands, á kjörsviðum þess og eftir stefnu og gildum.
Tengdar greinar
Uppfært: 12. október 2026





