MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Pistlar

Sex af hverjum tíu konum hjá Bjarmahlíð hafa upplifað kyrkingu

Eftir María Hjelm·
20230826_140717-1-1
Mynd: Birna Guðrún Árnadóttir· kaffid.is

Birna Guðrún Árnadóttir, teymisstýra Bjarmahlíðar skrifar

Nýverið hófst mikilvægt fræðsluátak um kyrkingar og alvarlegar afleiðingar þeirra. Þótt átakið hafi verið sýnilegt á höfuðborgarsvæðinu sýna reynsla og gögn frá Bjarmahlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis á Norðurlandi, að þetta er vandamál sem nær um allt land.

Tölur úr starfsemi Bjarmahlíðar árið 2025 vekja sérstakar áhyggjur. Tæplega 60% þeirra kvenna sem leituðu til okkar greindu frá því að hafa einhvern tíma á lífsleiðinni verið teknar kyrkingartaki. Af þeim höfðu tæplega þrjár af hverjum fjórum (75%) upplifað kyrkingu þrisvar sinnum eða oftar.

Þessar tölur eru sláandi. Kyrking er ekki aðeins eitt hættulegasta form ofbeldis heldur jafnframt einn sterkasti þekkti áhættuþátturinn fyrir því að ofbeldi í nánum samböndum stigmagnist og verði lífshættulegt. Rannsóknir sýna að konur sem hafa orðið fyrir kyrkingu af maka sínum eru sjö sinnum líklegri til að verða fyrir morðtilraun síðar og rúmlega átta sinnum líklegri til að vera myrtar af sama aðila en konur sem ekki hafa orðið fyrir kyrkingu.

Hálsinn er viðkvæmur og hver sekúnda skiptir máli

Það þarf aðeins lítinn þrýsting á háls til að valda lífshættulegum skaða. Aðalvandinn er ekki að þrengt sé að öndunarvegi einstaklings heldur að blóðflæði til og frá heila er heft. Um 1,8 kg þrýstingur getur lokað fyrir bláæðar frá heilanum og við 2,5–5 kg getur blóðflæði um hálsslagæðar skerst verulega eða stöðvast. Til samanburðar þarf um 9 kg kraft til að opna gosdós og handaband tveggja fullorðinna getur numið um 45 kg átaki. Það þarf aðeins brot af venjulegum handstyrk til að skerða blóðflæði til heilans og í sumum tilfellum getur dauði orðið á örfáum mínútum.

Við kyrkingu er hárfín lína milli lífs og dauða og skiptir hver sekúnda máli. Kyrkingartak veldur skaða um leið og blóð kemst ekki til heilans en tugir þúsunda heilafrumna geta skemmst eða drepist á hverri sekúndu sem blóðflæði er skert. Meðvitundarleysi getur orðið á að meðaltali 6,8 sekúndum, þvagmissir eftir 15 sekúndur og hægðamissir á 30 sekúndum. Skerðing á blóðflæði til heilans getur orðið banvæn á aðeins tveimur mínútum. Aðrar alvarlegar afleiðingar eftir kyrkingartak geta verið breytingar á rödd, sjón og heyrn, flog, minnisleysi auk þess sem fíngerð líffæri í hálsinum geta auðveldlega brotnað við þrýsting.

Kyrking er gríðarlegt sálrænt áfall

Þolendur kyrkingar eiga í hættu á að þróa með sér áfallastreituröskun, kvíða, þunglyndi og sjálfsvígshugsanir. Á meðan á kyrkingu stendur upplifa þolendur sig hársbreidd frá dauðanum, sem hefur djúp tilfinningaleg áhrif á taugakerfið. Það er líka sjálfstætt áfall, þegar náinn ástvinur veldur manni svo hryllilegum skaða. Sálræn vanlíðan og ótti getur varað lengi eftir að atvikið er liðið hjá og sumir jafna sig aldrei að fullu.

Sýnilegir áverkar segja lítið til um alvarleikann

Eitt af því sem gerir kyrkingu sérstaklega hættulega er að oft sjást litlir eða engir ytri áverkar. Rannsóknir sýna að 40–50% þeirra sem lifa kyrkingu af bera enga sýnilega áverka. Skortur á marblettum, roða eða húðblæðingum útilokar ekki alvarlega áverka eða afleiðingar þar sem 40% þeirra sem láta lífið af völdum kyrkingar bera enga sjáanlega ytri áverka. Þess vegna er mikilvægt að leita ávallt læknisaðstoðar eftir kyrkingu, jafnvel þótt einstaklingur telji sig óslasaðan. Innvortis áverkar geta komið fram klukkustundum, dögum eða jafnvel vikum síðar og í versta falli leitt til dauða ef ekkert er aðhafst.

Kyrkingar í kynlífi eru orðnar áhyggjuefni

Niðurstöður Bjarmahlíðar sýna að 60% þeirra sem höfðu upplifað kyrkingu sögðu hana hafa átt sér stað í kynferðislegu samhengi, en 40% í tengslum við líkamlegt ofbeldi.

Það sem vekur sérstakar áhyggjur er að margar konur skilgreina oft kyrkingu í kynlífi ekki sem ofbeldi. Þegar kyrking á sér stað í tengslum við kynlíf virðist sem ofbeldið frekar vera réttlætt en ef sami verknaður ætti sér stað við aðrar aðstæður. Þess vegna spyrjum við hjá Bjarmahlíð sérstaklega um kyrkingar í kynlífi. Annars myndu margar konur sennilega aldrei segja frá þessari reynslu.

Af þeim sem höfðu verið teknar kyrkingartaki í kynlífi sögðu ríflega 75% að það hefði gerst án samþykkis. Aðeins 19% sögðust hafa samþykkt kyrkingu, en 6% höfðu upplifað hana bæði með og án samþykkis.

Þessar niðurstöður vekja upp mikilvægar spurningar. Hversu upplýst getur samþykki verið þegar margir vita ekki að kyrking getur valdið varanlegum heilaskaða eða dauða? Og hversu frjálst er samþykki þegar ótti, valdaójafnvægi eða þrýstingur er til staðar í sambandi?

Fræðsla getur bjargað mannslífum

Flestar þær konur sem hafa sagt okkur frá kyrkingu lýsa því að þær hafi ekki gert sér grein fyrir því að þær hefðu orðið fyrir lífshættulegu ofbeldi. Við sjáum einnig að margir gerendur virðast heldur ekki gera sér grein fyrir þeirri alvarlegu hættu sem fylgir kyrkingu.

Það virðist vera algengur misskilningur hjá þeim sem stunda kyrkingar í kynlífi að hægt sé að beita kyrkingartaki á ,,réttan hátt‘‘. Það er ekki til neitt sem heitir örugg kyrking eða rétt kyrking!

Margir átta sig ekki á því að þegar þeir taka aðra manneskju kyrkingartaki eru þeir bókstaflega með líf og heilsu annarrar manneskju í lúkunum! Þess vegna skiptir fræðsla máli.

Kyrking er aldrei vægt ofbeldi. Hún er eitt skýrasta hættumerkið um að ofbeldi í nánum samböndum sé að stigmagnast og geti valdið varanlegum skaða eða dauða, jafnvel þó engir sýnilegir áverkar séu til staðar.

Með aukinni þekkingu getum við hjálpað þolendum að átta sig fyrr á hættunni og leita sér aðstoðar, ásamt því að fræða gerendur um alvarleika ofbeldisins. Við sem samfélag, þurfum að taka höndum saman og bregðast við kyrkingum af þeirri alvöru sem þær krefjast. Bjarmahlíð býður upp á fræðslu um ofbeldi og afleiðingar þess, þar á meðal um kyrkingar.

Öllum er velkomið að hafa samband og óska eftir fræðslu eða frekari upplýsingum.

Höfundur er Birna Guðrún Árnadóttir, teymisstýra Bjarmahlíðar

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026