Alex Cambray Orrason setti Íslandsmet í hnébeygju á bikarmótinu í kraftlyftingum um helgina. Gekk mótið að sögn Lyftingardeildar KA mjög vel og stendur Íslandsmetið upp úr þar sem Alex náði að lyfta 360,5 kg. í 105 kg. flokki.
Árið 2013 náði Viktor Samúelsson fyrstur manna 300 kg. í hnébeygju í þessum flokki á Íslandi. Einar Örn Guðnason síðan náði því meti og hélt áfram að bæta metið þar til árið 2018 þegar hann lyfti 360 kg.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Alex var einnig stigahæsti keppandinn með 90,3 stig. En stigahæsti keppandinn í kvennaflokki var Aníta Rún Bech Kajudóttir sem er einnig úr KA, en hún var með 59,3 IPF GL stig.










