Sérsveitaraðgerð á Akureyri
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Sérsveit ríkislögreglustjóra aðstoðaði lögregluna á Akureyri við að handtaka tvo einstaklinga á aðskildum stöðum laust eftir hádegi í gær, þar af annan í heimahúsi. Vísir greindi frá að báðum hafi nú verið sleppt úr haldi en lögreglan gefur ekki upp tilefni aðgerðarinnar. Að sögn varðstjóra var sérsveitin kölluð til vegna vegna þörf á mannafla en ekki vegna þess að grunur léki á vopnaburði.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










