MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Séra Sighvatur opnar málverkasýningu í Safnahúsinu í dag

Eftir María Hjelm·
20191212_153838_2_600x600
Mynd: apolloart.is· kaffid.is

Séra Sighvatur Karlsson þjónaði sem sóknarprestur Húsavíkursóknar um áratugaskeið. Í dag, fimmtudaginn 23. júlí klukkan 14 opnar málverkasýning með verkum eftir hann í Safnahúsinu á Húsavík. Þetta kemur fram á vef husavik.com.

Þar kemur fram að sýningin sé haldin í tilefni af 40 ára vígsluafmæli Sighvats til prests. Þar verða sýnd fjölbreytt málverk eftir hann og gestum verður boðið upp á léttar veitingar.

Þótt Sighvatur sé þekktastur fyrir störf sín innan kirkjunnar hefur hann um árabil sinnt myndlist af miklum krafti. Hann hefur stundað nám í Myndlistaskóla Kópavogs í frjálsri málun og blandaðri tækni og vinnur bæði abstraktverk og landslagsmyndir, þar sem íslensk náttúra er gjarnan helsta viðfangsefnið.

Sighvatur hefur áður haldið einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga, bæði á Húsavík og á höfuðborgarsvæðinu. Árið 2020 hélt hann meðal annars sýningu í Seltjarnarneskirkju þar sem hann sýndi málverk sem byggð voru á Davíðssálmum, en þau voru unnin undir áhrifum tónlistar Antoníns Dvořáks.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026