
Ótvíræður senuþjófur næturinnar er Akureyringurinn Áki Sebastian Frostason Sahr en í kosningapartíi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri ruddist hann inn í beina útsendingu á RÚV og flutti ljóð.
Verið var að ræða við Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra þegar Áki Sebastian stökk bakvið myndavélina og flutti þetta áhugaverða ljóð.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
„Af hverju man enginn hrunið og Tortóla. Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða.” Myndband af atvikinu má sjá hér að neðan.
Legend í beinni frá Akureyri!#kosningar pic.twitter.com/5vsSQpyUZK
— Margeir (@margeir) October 29, 2016










