Seldu pítsur og söfnuðu 845 þúsund krónum fyrir leikskóla
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Foreldrar barna við leikskólann Grænuvelli á Húsavík tóku sig nýverið til og söfnuðu alls 845.162 krónum til styrktar leikskólanum. Þetta gerðu þau með því að baka og selja pítsur í Pizzakofanum á Húsavík. Fjallað er um málið á vef Húsavík.com.
Þar er haft eftir Sigríði Valdísi Sæbjörnsdóttur, leikskólastjóra Grænuvalla, að foreldrar hafi haft samband og óskað eftir leyfi fyrir því að nota merki skólans í söfnun. Þá hafi hún komið algjörlega af fjöllum.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










