Seldu 736 treyjur til styrktar Gedda
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Þórsarar hafa lokað fyrir treyjusölu á sérhönnuðum þórstreyjum sem hannaðar voru til styrktar þórsaranum Gesti Arasyni, Gedda, sem greindist með bráða hvítblæði þann 5. maí síðastliðinn. Á tæpum tveimur sólarhringum seldust 736 treyjur. Allur ágóði af sölunni rennur beint til Gests og fjölskyldu.
Þór hefur nú stofnað sérstakan styrktarreikning fyrir þau sem vilja styrkja Gedda beint, hér fyrir neðan eru reikningsupplýsingar:
Íþróttafélagið Þór
Kennitala
710269-2469
Reikningsnúmer
0566-26-001101
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










