Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar segir það nauðsynlegt að geta gripið til einhverra úrræða til að sporna við svifryksmengun. Að nýta heimild til götulokana og banna umferð hljóti þó að vera síðasta úrræði. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
Hún segir í samtali við Morgunblaðið að það hafi ekki verið rætt og yrði hvergi vinsælt. „Þegar menn grípa til þess ráðs að banna umferð, þá hljóta þeir að hafa reynt öll önnur úrræði án árangurs,“ segir Ásthildur í Morgunblaðinu.