Nýsköpunarfyrirtækið Sea Thru er handhafi hvatningarverðlauna Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS, í ár. Verðlaunin voru afhent á ársfundi samtakanna á föstudaginn.
Framkvæmdastjóri Sea Thru, Arna Bryndís Baldvins McClure, segir á vef Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi að fyrirtækið sérhæfi sig í að þróa hugbúnaðarlausn sem safnar saman upplýsingum frá aðilum í virðiskeðju sjávarfangs. Síðan séu upplýsingarnar tengdar saman og úr verði heildarmynd af ferðalagi fisksins frá veiðum til viðskiptavina. Svolítið eins og Google-maps, bara fyrir fisk.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Sea Thru er hluti af frumkvöðlasamfélagi Drift EAog er í Hlunninum (incubator) prógrammi Driftar. Drift hefur stutt við uppbyggingu þess meðal annars með fjárfestingu, ráðgjöf og vinnuaðstöðu.










