MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Samverustund í Kjarnaskógi – Hver grípur þig þegar á reynir?

Eftir Ingólfur Stefánsson·
782599588_1484368047060435_1203179555375137970_n
kaffid.is

Í tilefni af Gulum september tekur fjölbreyttur hópur samtaka á Akureyri höndum saman og býður til samverustundar í Kjarnaskógi laugardaginn 5. september næsktkomandi klukkan 14.00.

Markmið viðburðarins Hver grípur þig þegar á reynir? er að skapa rými til að staldra við og eiga notalega stund saman, ásamt því að vekja athygli á fjölbreyttri og gjaldfrjálsri þjónustu sem stendur fólki til boða á Akureyri og nágrenni.

Í boði verður:
– Leidd hugleiðsla/skógarbað með Sjálfsrækt.
– Hugvekja frá Séra Sindra Geir.
– Ketilkaffi í boði Skógræktarfélagsins.
– Fulltrúar samtakanna verða á staðnum til að spjalla við og kynna þjónustu sína.

Að viðburðinum standa Aflið, Bergið Headspace, Bjarmahlíð, Frú Ragnheiður, Gley Mér Ei, Grófin Geðrækt, Hjálp 48, KAON, Kvennaathvarfið, Píeta og Sorgarmiðstöð, sem öll bjóða upp á gjaldfrjálsa þjónustu á Akureyri.

Gulur september er tileinkaður vitundarvakningu um geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir. Með viðburðinum viljum við minna á mikilvægi þess að vita hvert hægt er að leita – bæði fyrir okkur sjálf og fólkið í kringum okkur.

Viðburðurinn á Facebook.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026