Samúelssynir tóku gull og silfur
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Bræðurnir Viktor og Örvar Samúelssynir enduðu í efstu tveimur sætunum í 105 kg flokki á Íslandsmótinu í klassískum kraftlyftingum sem fór fram í Mosfellsbæ um helgina.
Viktor lyfti 275 kílóum í hnébeygju, 195 í bekkpressu og 300 í réttstöðulyftu. Samanlagt lyfti hann því 770 kílóum sem var það hæsta á mótinu og skilaði honum 79,7 stigum og Íslandsmeistaratitli. Örvar endaði í öðru sæti með 64,4 stig.
Önnur úrslit á mótinu má finna á vef Kraftlyftingasambands Íslands með því að smella hér.
View this post on Instagram A post shared by Viktor Samúelsson (@viktor93sam)
Tengdar greinar
Uppfært: 25. apríl 2026










