Samtalið við bæjarbúa fært nær

Viðtalstímar bæjarfulltrúa á Akureyri verða endurvaktir í september eftir að hafa legið niðri um nokkurra ára skeið. Tillagan verður lögð fyrir bæjarstjórn í dag.
„Með þessu erum við að færa samtalið við bæjarbúa nær og gera fólki auðveldara að koma sínum sjónarmiðum, hugmyndum og ábendingum á framfæri við kjörna fulltrúa,“ segir Óðinn Svan Óðinsson, formaður bæjarráðs.
Markmiðið er að efla samtal og samráð við íbúa og fyrirtæki í bænum. Gert er ráð fyrir að viðtalstímarnir verði haldnir fjórða þriðjudag hvers mánaðar frá klukkan 16:00 til 17:30. Að minnsta kosti tveir bæjarfulltrúar verða til viðtals hverju sinni, einn úr meirihluta og einn úr minnihluta.
Fyrsti viðtalstíminn er fyrirhugaður þriðjudaginn 22. september á Amtsbókasafninu á Akureyri.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










