Samstöðutónleikar á Kristnesi

Vegna myglu sem kom upp á Kristnesspítala stendur til að flytja endurhæfingardeild SAK þaðan til Akureyrar. Hópur fólks hefur lýst yfir óánægju með fyrirhugaðan flutning og lýst yfir áhyggjum af framtíð byggingarinnar, sem verður 100 ára á næsta ári.
Til að vekja athygli á kröfunni um að starfsemin verði áfram á Kristnesi munu aðstandendur hópsins halda útitónleika sunnan við spítalabygginguna þann 29. ágúst. Í tilkynningu frá hópnum segir:
„Flestir hafa eflaust heyrt af myglunni á Kristnesspítala þar sem endurhæfing SAK hefur farið fram síðustu áratugi með góðum árangri. Búið að koma þar upp sérhæfðri endurhæfingarsundlaug svo ekki sé minnst á fallega gróna umhverfið sem hefur sannarlega heilunarmátt í sjálfu sér. Nú stefnir í það að endurhæfingin verði flutt til Akureyrar og enginn veit hvað verður um húsið sem verður 100 ára á næsta ári. Við erum ansi mörg sem erum ósátt við þessa málavöxtu og viljum gera allt sem í okkar valdi stendur til að sannfæra stjórnvöld um að þarna eigi endurhæfingin heima. Einnig langar okkur að gera eitthvað jákvætt og skemmtilegt til að vekja athygli á málstaðnum og okkur datt í hug að henda í tónleika sunnan við spítalabygginguna si svona! Búið er að safna 2511 undirskriftum til bjargar endurhæfingunni á Kristnesi og buðum við heilbrigðisráðherra Ölmu Möller að koma og taka á móti þeim á tónleikunum en hún kemst ekki. Þá förum við til hennar við tækifæri.“
HljóðAk mun útvega hljóðkerfi án endurgjalds og 10 tónlistarmenn/hljómsveitir ætla að taka lagið endurgjaldslaust fyrir málstaðinn.
Enginn aðgangseyrir er að tónleikunum en tekið er á móti frjálsum framlögum.

Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










