Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fréttir

Samstarfssamningur Norðurslóðanetsins og Utanríkisráðuneytisins endurnýjaður

Eftir Ingólfur Stefánsson·
iacn-og-utanrikisraduneytid-2
Mynd: Hilmar Friðjónsson· kaffid.is

Síðastliðinn föstudag heimsótti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra Borgir þar sem endurnýjaður samstarfssamningur Norðurslóðanetsins og Utanríkisráðuneytisins var undirritaður við hátíðlega athöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Háskólans á Akureyri, unak.is, í dag.

Samninginn undirrituðu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Embla Eir Oddsdóttir, forstöðumaður Norðurslóðanetsins. Elín Díanna Gunnarsdóttir aðstoðarrektor Háskólans á Akureyri og Hlynur Guðjónsson deildarstjóri norðurslóðadeildar í utanríkisráðuneytinu og aðalfulltrúi Íslands í embættismannanefnd Norðurskautsráðsins, voru jafnframt viðstödd.

Utanríkisráðherra færði Háskólanum á Akureyri, CAFF, PAME, Stofnun Stefáns Vilhjálmssonar, International Arctic Science Committee (IASC), Akureyrarbæ, Norðurslóðanetinu og öðrum samstarfsaðilum á Akureyri þakkir fyrir forystu í norðurslóðamálum jafnt innanlands sem utan og gott samstarf við utanríkisráðuneytið.

Hún lagði áherslu á mikilvægi norðurslóðastofnananna og þekkingarsamfélagsins á Akureyri og hvernig bærinn hefur fest sig í sessi sem miðstöð innlendrar og alþjóðlegrar þekkingar um málefni norðurslóða á Íslandi.

Nánar á unak.is.

Frétt Utanríkisráðuneytisins má finna hér Stjórnarráðið | Utanríkisráðuneytið endurnýjar samstarfssamning við Norðurslóðanet Ísland

Tengdar greinar

Uppfært: 24. september 2026