MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Samstarf um krabbameinslækningar

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
Screenshot-2025-12-05-at-12.07.54
kaffid.is

Sjúkrahúsið á Akureyri og Landspítalinn hafa gert með sér samstarfssamning vegna krabbameinslækninga á SAk. Þetta kemur fram á vef SAk, þar segir einnig:

Fjögurra manna teymi lækna Landspítala mun sinna krabbameinslækningum á SAk og skiptast læknarnir á þriggja daga viðveru á Akureyri. Teymið samanstendur af tveimur læknum sem starfað hafa á SAk um nokkurra ára skeið, þeim Signýju Völu Sveinsdóttur blóðlækni og Örvari Gunnarssyni krabbameinslækni. Þá bætast við í teymið tveir nýir krabbameinslæknar, þær Þóra Rún Úlfarsdóttir og Ólöf Kristjana Bjarnadóttir.

„Við erum mjög ánægð með að hafa gengið frá þessum samningi og tryggt áframhaldandi þjónustu krabbameins- og blóðlækna. Við hlökkum til samstarfsins og að sjá þjónustuna eflast og þróast enn frekar,“ segir Guðni Arnar Guðnason, starfandi forstöðulæknir lyflækninga.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026