Í dag var undirritaður samningur um þverfaglegt samstarf aðila á Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu sem sinna málefnum ungs fólks á aldrinum 16-29 ára. Undirritunin fór fram í Ungmennahúsinu Rósenborg.
Verkefnið gengur undir heitinu Virkið og því er ætlað að vera vettvangur um samstarf þegar þessi hópur fólks þarf, stöðu sinnar vegna, á þjónustu að halda. Þjónustu sem snýr m.a. að atvinnuleit, skólagöngu, endurhæfingu eða annarri meðferð.
Með tilkomu samningsins verður þverfaglegt samstarf þeirra sem koma að málefnum aldurshópsins fest í sessi.
Eftirfarandi aðilar standa að samkomulaginu: Vinnumálastofnun Norðurlands eystra, Akureyrarbær (fjölskyldusvið og Ungmennahúsið – Rósenborg), Fjölsmiðjan á Akureyri, Sjúkrahúsið á Akureyri (geðdeild og BUG teymið), Heilbrigðisstofnun Norðurlands (Heilsugæslan), Virk, Menntaskólinn á Akureyri, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar, Grófin geðverndarmiðstöð og Starfsendurhæfing Norðurlands.
Í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra segir að þar séu miklar væntingar gerðar til þessa samstarfs í þágu ungs fólks og lögreglan sé þakklát þeim sem hafa unnið að verkefninu.
Meginmarkmið samstarfsins er að:
- stuðla að bættri almennri þjónustu fyrir ungt fólk á aldrinum 16–29 ára
- stuðla að bættri sérhæfðri þjónustu fyrir fólk á aldrinum 16–29 ára
- efla þverfaglegt samstarf fagaðila stofnananna til hagsbóta fyrir hópinn
UMMÆLI