Samstarf HA og Tongji University styrkt með nýjum samningi
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Háskólinn á Akureyri tók á móti sendinefnd frá Tongji University í Shanghai í Kína á dögunum. Í hópnum voru tveir kennarar og ellefu stúdentar sem kynntu sér starfsemi háskólans og ýmis alþjóðleg samstarfsverkefni á Norðurslóðum.
Hápunktur heimsóknarinnar var undirritun samstarfssamnings (Memorandum of Understanding) milli Háskólans á Akureyri og Tongji University. Samningurinn leggur grunn að auknu samstarfi háskólanna á sviði kennslu, rannsókna og alþjóðlegra tengsla og felur meðal annars í sér möguleika á stúdenta- og starfsmannaskiptum.
Með samstarfinu styrkir HA tengsl sín við eitt af fremstu háskólasamfélögum Kína og opnar ný tækifæri fyrir stúdenta, kennara og rannsakendur beggja stofnana.
Tengdar greinar
Uppfært: 8. september 2026










