Samningur um sleðabraut í Hlíðarfjalli undirritaður

Akureyrarbær og Kambagil ehf. hafa undirritað samning um afnot af landi til reksturs sleðabrautar milli Hlíðarfjalls og Hálanda. Greint er frá á vef Akureyrarbæjar í dag.

Þar segir að brautin verði allt að 1800 metra löng og að verkefnið eigi rætur að rekja til hugmyndasamkeppni um nýja afþreyingu í Hlíðarfjalli.

Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist í ár og að brautin verði opnuð sumarið 2027 en í síðasta lagi sumarið 2028.

Leigutími samningsins er 25 ár frá opnun, með möguleika á endurskoðun og framlengingu síðar. Rekstraraðili mun einnig hafa heimild til að samnýta bílastæði Hlíðarfjalls. Verkefnið er háð því að fjármögnun fáist og að öll tilskilin leyfi verði veitt.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!