MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Samningur milli Reita og FSRE um hjúkrunarheimili á Akureyri

Eftir Ingólfur Stefánsson·
hjukrunarheimili
Mynd: Reitir· kaffid.is

Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) hefur samþykkt tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis á Akureyri og aðilarnir gert með sér samning um verkefnið. Tilkynnt var í júní fyrr á þessu ári að FSRE hefði metið tilboð Reita hagstæðast með tilliti til verðs og afhendingartíma. Hjúkrunarheimilið verður byggt upp við Þursaholt 6, verður um 9.100 fermetrar að stærð og mun rúma 140 íbúa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reitum.

Stefnt er að því að taka hjúkrunarheimilið í notkun fyrir árslok 2030. Samkvæmt tilkynningu frá Reitum hefst hönnun og undirbúningur hússins núna. Það verður blanda af forsmíðuðum og forsteyptum einingum. Sú aðferð á að stytta framkvæmdatíma og auka sveigjanleika.

„Við fögnum þessum áfanga í uppbyggingu hjúkrunarheimilis á Akureyri,“ segir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita. „Félagið er nú með tvö hjúkrunarheimili í bígerð og er það liður í stefnu okkar um að nýta þá þekkingu, reynslu og bolmagn sem Reitir búa yfir til þess að byggja upp fasteignir sem samfélagið þarfnast. Hjúkrunarheimili eru þar ofarlega á baugi enda þörfin mikil.“

Ríkið leigir húsið af Reitum í 25 ár eftir að það verður tilbúið. Heilsuvernd, sem er einkarekið fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu, sér um reksturinn.

Tengdar greinar

Uppfært: 18. september 2026