MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Samið við Heilsuvernd um rekstur hjúkrunarheimilis Akureyrar

Eftir Ingólfur Stefánsson·
hukrunarheimili
Mynd: Reitir· kaffid.is

Ríkið hefur samið við fyrirtækið Heilsuvernd um rekstur á nýju hjúkrunarheimili í Þursaholti á Akureyri. Heilsuvernd rekur fyrir bæði hjúkrunarheimili bæjarins. Greint er frá á vef RÚV í dag.

Þar segir að áætlað sé að hjúkrunarheimilið rísi í Þursaholti, norðan við smábátahöfnina. Reitir vann útboð um byggingu heimilisins sem verður 9100 fermetrar með rými fyrir 140 íbú. Heilsuvernd vann svo útboð um rekstur hjúkrunarheimilisins.

Teitur Guðmundsson, forstjóri Heilsuverndar, segir í samtali við RÚV að samstarfið eigi að ganga tiltölulega hratt fyrir sig. Miðað við áætlun ríkisstjórnar um uppbyggingu hjúkrunarheimila eru áætluð verklok 2028. Teitur segist vona að framkvæmdir geti hafist bráðlega á lóðinni.

„Við höfum beðið lengi eftir því að geta endurbætt aðstöðu á Akureyri sem hefur legið lengi fyrir að er ekki alveg nægjanlega góð og þetta mun breyta því verulega“, segir Teitur.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026