MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Samfylkingin með mest fylgi í krakkakosningum

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Krakkakosningar voru haldnar í grunnskólum Akureyrarbæjar í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna sem fram fóru 16. maí síðastliðinn.

Á vef Akureyrarbæjar kemur fram að embætti umboðsmanns barna hafi sent bréf þar sem sveitarfélög voru hvött til að efna til umræðufunda með frambjóðendum og halda kosningar í kjölfarið. Grunnskólar Akureyrarbæjar tóku áskoruninni vel og buðu fulltrúum framboðanna í heimsókn áður en nemendur greiddu atkvæði.

Alls bárust 677 atkvæði í krakkakosningunum. Ekki náðist að halda kosningu í Hríseyjarskóla.

Niðurstöður krakkakosninganna voru eftirfarandi:

  • xS – Samfylkingin: 30,13%
  • xC – Viðreisn: 13,15%
  • xM – Miðflokkurinn: 13,15%
  • xL – L-listinn: 11,23%
  • xV – Vinstri græn: 8,86%
  • xA – Akureyrarlistinn: 7,24%
  • xD – Sjálfstæðisflokkurinn: 6,80%
  • xB – Framsóknarflokkurinn: 3,55%
  • Auð atkvæði: 5,91%

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026