Í gær barst Sjúkrahúsinu á Akureyri rausnarleg gjöf frá Smáríkinu þegar um 1.100 páskaegg voru afhent til að gleðja bæði starfsfólk og skjólstæðinga yfir páskahátíðina.
Greint er frá í tilkynningu á Facebook-síðu Sak þar sem segir að Smáríkið hafi með þessu viljað sýna stuðning við starfsemi SAk og færa smá páskagleði inn í daglegt líf þeirra sem hér starfa og dvelja.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
„Við kunnum Smáríkinu innilega þakkir fyrir hlýhuginn og óskum þeim sem og öllu starfsfólki SAk gleðilegra páska,“ segir í tilkynningu SAk.










