Skjáskot: RÚV

Saint Pete frumflutti nýtt lag í Vikunni

Vikan með Gísla Marteini var í beinni útsendingu frá Akureyri síðastliðinn föstudag, 27. mars. Akureyringurinn Pétur Már Guðmundsson, einnig þekktur sem Saint Pete, frumflutti þá nýtt, óútgefið lag, í beinni útsendingu á RÚV í Samkomuhúsinu. Sjáðu myndband hér að neðan.

Þetta var í fyrsta sinn sem að Vikan sendi beint frá Akureyri. Birgitta Haukdal, Vilhjálmur B. Bragason og Logi Einarsson voru gestir ásamt Saint Pete og þá flutti leikhópur Birtíngs atriði.

Pétur lofaði að sleppa nýrri plötu í sumar en fyrsta plata hans Græni Pakkinn sem kom út árið 2024 sló rækilega í gegn um allt land. Pétur sagði að hann reyndi að minnast á Akureyri í hverju einasta lagi sem hann semur, og þá helst brekkuna.

„Mér líður pínu illa yfir því. Ég er alltaf eitthvað hún kemur út í október, hún kemur út í febrúar. Að ljúga að fólkinu! Ég vil ekki gera það lengur en hún kemur út í júní,“ sagði Pétur um nýja plötu í Vikunni með Gísla.

Sjáðu atriði Péturs:

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!