Saint Pete á Barnamenningarhátíð 

Barnamenningarhátíð hefst um helgina. Í boði verða fjöldinn allur af spennandi viðburðum fyrir börn á öllum aldri. Enginn aðgangseyrir er á viðburðina.

Til að mynda fer fram þátttökusýningin Manndýr á laugardeginum. Verkið var frumsýnt 2022 í Tjarnarbíó og hefur verið sinnt 80 sinnum víða á Íslandi og erlendis við mjög góðar undirtektir. Tvær sýningar í boði.

Á sunnudeginum verður skapandi dansnámskeið fyrir krakka í boði Bunnyverse Company. Námskeiðið tileinkar sér ekki ákveðinn dansstíl og hentar því vel öllum börnum, hvort sem þau hafa reynslu af dansi eða ekki. Hugmyndin á rætur sínar í sýningu og hugmyndafræði dansverksins Kanlínudans.

Á sumardaginn fyrsta, 23. apríl, verður sannkölluð tónlistarveisla á sviði Hamraborgar í Hofi á Sumartónum Ungmennaráðs Akureyrar, Menningarhússins Hofs og Akureyrarbæjar í tilefni Barnamenningarhátíðar á Akureyri þegar rapparinn Saint Pete og hin unga og hæfileikaríka Karólína Orradóttir stíga á svið Hofs.

Þetta er bara brot af því sem verður í boði á Barnamenningarhátíð. Skoðaðu dagskrána á barnamenning.is.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!