Safnaði yfir hálfri milljón til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis

Hörður Óskarsson sem stendur að Mynthringar og allskonar, safnaði alls 551.650 krónum til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis í mars. Þetta gerði hann með sölu á svokölluðum myntmottum sem hann býr til úr gamalli mynt.

Hörður selur á hverju ári mottur og slaufur til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis, KAON. Í mars selur Hörður mottur og í október slaufur. Frá árinu 2018 hefur Hörður styrkt Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis um 3.247.000 krónur og nú bætast 551.650 krónur við þá upphæð.

Vert er að geta þess að vörur Harðar eru til sölu hjá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis og í vefverslun Krabbameinsfélagsins. Einnig er hægt að panta þær í gegnum Facebook síðu Harðar.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!