MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Sæfari siglir á ný

Eftir Ingólfur Stefánsson·
SfariviGrmseyIMG_1399-1-2000×1346-1
kaffid.is

Grímseyjarferjan Sæfari hefur hafið siglingar á ný á milli Dalvíkur og Grímseyjar. Sæfari var í slipp í október vegna viðhalds. Greint er frá á vef Akureyrarbæjar.

Þar kemur fram að fyrsta áætlunarferðin sé í dag, með siglingu til Hríseyjar, og á morgun fer fyrsta ferðin til Grímseyjar eftir hléið.

Þessi viðhaldslota sem nú er afstaðin er sú fyrri af tveimur, en önnur styttri vinnulota er fyrirhuguð um mánaðarmótin janúar/febrúar. Þá verður Sæfari ekki settur í slipp, heldur verður viðhald unnið meðan ferjan liggur við bryggju.

Fram að áramótum siglir ferjan þrisvar sinnum í viku til Grímseyjar, en eftir áramótin fjölgar ferðunum í fjórar á viku. Upplýsingar um ferjuna og áætlun hennar má finna á vef Grímseyjar.

Mynd: Akureyri.is

Tengdar greinar

Uppfært: 26. apríl 2026