Grímseyjarferjan Sæfari hefur áætlunarsiglingar á ný á morgun, mánudaginn 30. mars eftir umtalsverðar viðgerðir og umbætur. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.
Þau sem stefna á að heimsækja Grímsey um páskana geta því hvort heldur sem er tekið ferju eða flug. Áætlunarferðir með ferjunni eru á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum og með flugi á þriðjudögum, föstudögum og sunnudögum. Yfir páskana fækkar áætlunarferðum eitthvað, sjá nánar á vef Vegagerðarinnar og Norlandair.
Í Grímsey eru þrír gististaðir, veitingastaður, búð og sundlaug. „Skemmtilegasti tími ársins er fram undan með ríkulegu fuglalífi og björtum sumarnóttum. Sjófuglarnir eru farnir að setjast upp í björgin og það styttist óðum í að fyrstu lundarnir láti sjá sig en þeir fara yfirleitt að láta á sér kræla í kringum 10. apríl,“ segir í tilkynningu bæjarins.










