MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

SA Víkingar steinlágu fyrir Birninum

Eftir Ritstjórn·
SA Víkingar gegn Birninum
Slæm byrjun Íslandsmeistara SA heldur áfram. Mynd tekin af www.sasport.is

Leikið var í Hertz-deild karla í íshokkí í kvöld. Í Skautahöllinni á Akureyri fengu SA Víkingar heimsókn frá Birninum.

Strákarnir hafa farið illa af stað í Íslandsmótinu og slæmt gengi þeirra heldur áfram því Björninn vann öruggan sex marka sigur.

Jussi Sipponen kom SA reyndar yfir snemma leiks en í kjölfarið stigu gestirnir á bensíngjöfina og unnu að lokum 8-2 sigur.

Markaskorarar SA Víkinga: Jussi Sipponen 1, Björn Jakobsson 1.

Markaskorarar Bjarnarins: Brynjar Bergmann 2, Ingþór Árnason 1, Elvar Ólafsson 1, Eric Anderberg 1, Jón Árnason 1, Kristján Kristinsson 1, Edmunds Induss 1.

Tengdar greinar

Uppfært: 22. apríl 2026