MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

S-I-L-I-C-A-0-3 opnar í Listasafninu á Akureyri

Eftir María Hjelm·
2-huldarosgudnadottir_2026 c Lea Hopp1483
kaffid.is

Hulda Rós Guðnadóttir er ein þriggja listamanna sem opnar sýningu í Listasafninu á Akureyri laugardaginn 16. maí klukkan 15.00. Hulda hefur haldið einkasýningar víða um heim og S-I-L-I-C-A-0-3 er þriðja sýningin sem birtist almenningi úr rannsóknarverkefninu SILICA sem hún hefur unnið að síðastliðin ár.

Rannsóknarverkefni sem spannar heimsálfur

S-I-L-I-C-A-0-3 hefur þróast á milli ólíkra heimsálfa og staða sem tengjast efnum sem þarf fyrir framleiðslu á kísli fyrir hátækniiðnað, svo sem hálfleiðara og sólarorkuiðnað.

„Í verkefninu skoða ég hvernig sú tækni sem við sjáum oft sem óefnislega á sér í raun mjög efnislega og orkufreka framleiðslusögu sem teygir sig um allan heim, langt ofan í iður jarðar sem og moldina sjálfa og jafnvel inn í fjöllin.“

Hulda segir verkið tengjast sérstaklega Norðurlandi og þeirri staðreynd að á Húsavík hefur þangað til nýlega farið fram framleiðsla á kísilmálmi sem er hluti af alþjóðlegri framleiðslukeðju.

„Í verkunum er unnið með hráefni sem ég fékk frá PCC á Bakka, kolamola sem notaðir eru við bræðsluna en einnig hef ég gert skúlptúra úr kíslinum sjálfum. Kísillinn sem búin var til á Bakka var um næstum 99% hreint og var unnin frekar annars staðar.“

Kísillinn í forgrunni

„Orðið silica er ekki heiti á kísli heldur alþýðuheiti yfir kísiltvíoxíð, efni sem finnst víða í jarðskorpunni. Þetta er svona alþýðuheiti á efninu. Til iðnaðarframleiðslu þarf þó mjög hreint hráefni og því er gjarnan unnið með kvars sem inniheldur færri óhreinindi en mörg önnur efni. Við námavinnsluna þarf því að komast að jarðlögunum þar sem þessi kvars er að finna. Það getur til dæmis verið ákveðna æðar í fjalli og verður þá að brjóta ofan að komast að þessum æðum.“

Frá Berlín til Akureyrar

Hulda er búsett í Berlín og fyrsta sýningin í tiltekinni röð var haldin í Berlín.

„Það var innsetning með ljósmyndum og vídeó og sú næsta var á listamessu í Vín þar sem skúlptúrar sem eru til sýnis hér á Akureyri voru frumsýndir og sýndir ásamt fleiri verkum úr rannsóknarverkefninu. Árið 2020 var reyndar nokkurs konar forsmekkur á 20 ára afmælishátíð Norrænu sendiráðanna í Berlín á samsýningu á norrænni list en þá voru risastór auglýsingaspjöld, einnig unninn úr rannsóknarverkefninu.“

Hulda vinnur einnig með gler, sem er afurð unnin beint úr kísiltvíoxíð en það þarf ekki þessa ákveðnu umbreytingu í hreinni kísil til að búa til gler.

Samstarfið við Listasafnið á Akureyri

Hulda kynnti verkefnið fyrir Sigríði Örvarsdóttur, safnstjóra safnsins og sýningarstjóra sýningarinnar, með það í brennidepli að frumsýna verkefnið á Íslandi nálægt því fólki sem vann á sínum tíma á Bakka og í Þeistareykjum og veitti henni aðgang að bræðslunni og borholunum.

„Þau voru einnig svo almennileg að láta mig fá efnið til að leika mér með. Sigríður valdi skúlptúrana úr verkefninu og upp úr því þróaðist að þessi sýning er með sérstakan fókus á beina virkni efnanna sem koma við sögu og „umbreytir þeim í vettvang gagnrýninnar íhugunar“ eins og Sigríður orðar það í sýningarstjóratextanum.“ Efnin verða meira en miðill fyrir hugmyndir, þau verða virkur þátttakandi í merkingarmyndun og eiginleikar þeirra og uppruni hluti af verkinu.

Hulda segist lengi hafa haft áhuga á því hvernig hægt er að tengja saman rannsóknarvinnu, staðbundna reynslu og skynræna upplifun í sýningarrými þannig að fólk upplifi verkin bæði líkamlega og hugmyndalega.

„Þegar ég kynnti verkefnið fyrir Sigríði fannst mér mjög mikilvægt að sýningin yrði ekki bara sýnd í alþjóðlegu listasamhengi erlendis heldur líka hér, nálægt þeim stað þar sem þessi saga og þessi efni eiga sér raunverulegar rætur. Mér finnst líka skipta máli að Listasafnið á Akureyri hefur sterka stöðu í íslensku samtímalistalífi og er mikilvægur vettvangur fyrir samtal um samfélag, náttúru og samtímann.“ 

Uppruni rannsóknarinnar

Verkefnið sjálft á sér langa forsögu en segja má að vísir að rannsókninni hafi vaknað árið 2017 þegar Huldu var boðið til Ástralíu þar sem hún fékk að heimsækja kísiltvíoxíðnámu sem var í eigu japansks fyrirtækis.

„Þetta var á tíma þegar mikil umræða var hafin á Íslandi um opnun á kísilbræðslum og ég tengdi þessa hluti saman. Líka þar sem listrannsóknarverkefnið sem ég var þá á kafi í hafði leitt athygli mína að þessari gríðarlegu aðfangakeðju sem einkennir hnattræna framleiðsluhætti samtímans. Mér þótti áhugavert þetta orð kísilbræðsla sem er þekkt í íslensku tungumáli en fáir vita hvað fer þar fram. Margir halda að verið sé að vinna úr kísli sem finnst í jörðu á Íslandi frekar en að verið sé hreinlega að búa til kísil. Ég hef líka mikinn áhuga á því hvernig Ísland tengist og tekur þátt í umheiminum. Hvernig við erum hluti af stærra kerfi og alls ekki svo einangruð.“

Andstæður efna og upplifunar

Í verkum Huldu mætast mjög ólík efni og andstæður — kol, gler og kísill, myrkur og ljós, þungi og gegnsæi.

„Ég held að fólk finni bæði fyrir ákveðinni fegurð og líka einhverri togstreitu eða óþægindum þegar það áttar sig á því að þessi efni tengjast þeirri tækni sem við notum daglega en sjáum venjulega aldrei hvernig verður til.“

Sýningin er ekki sett fram sem bein pólitísk yfirlýsing heldur frekar sem vettvangur til að hugsa um tengsl okkar við efni, orkuvinnslu, náttúru og alþjóðleg framleiðslukerfi. Gestir mega búast við mjög efnislegri sýningu þar sem ljós, skuggar og eiginleikar efnanna sjálfra skipta miklu máli. Sum verkanna breytast líka eftir því hvernig fólk hreyfir sig um rýmið og hvernig ljósið fellur á þau.

Efnin sem virkir þátttakendur

„Ég vinn með mjög ólíka miðla eftir því hvað hvert rannsóknarverkefni kallar á. Í gegnum árin hef ég meðal annars unnið með vídeó, ljósmyndir, innsetningar og skúlptúra en líka texta og rannsóknarvinnu sem hluta af listsköpuninni sjálfri.“

Í SILICA verkefninu hafa efnin sjálf orðið mikilvægur hluti af verkinu og Hulda vinnur meðal annars með kísil, kol og gler vegna þess að þessi efni eru ekki bara táknræn heldur bera þau með sér raunverulega sögu um orkuvinnslu, iðnað og framleiðsluferli. „Mér finnst áhugavert þegar efnin sjálf verða virkir þátttakendur í verkinu en ekki bara hlutlausir miðlar fyrir hugmynd,“ segir Hulda.

Rannsóknarferðir um heiminn

Hulda hefur ferðast víða til að stunda þær rannsóknir sem liggja að baki verkefninu.

„Það sem hefur líklega verið mest krefjandi við verkefnið er hversu mikil og löng rannsóknarvinna liggur að baki því. Verkefnið hefur kallað á ferðalög til meðal annars Úrúgvæ, Kólumbíu, Egyptalands, Taívans og Suður-Kóreu þar sem ég hef rannsakað ólíka hluta framleiðslukeðjunnar, allt frá námuvinnslu og orkuframleiðslu yfir í hátækniiðnað. Það er mjög erfitt að fá aðgang að þessum heimum. Það tók mörg ár að komast inn í námur, einræktarsvæði og iðnaðarframleiðslu og oft þurfti að byggja upp traust yfir langan tíma. Margar þessara starfsstöðva eru lokaðir eða mjög vaktaðir staðir þar sem ljósmyndun og rannsóknarvinna er ekki sjálfsögð.“

Líkamleg reynsla varð hluti af verkinu

„Ferðirnar sjálfar gátu líka verið líkamlega krefjandi. Í Kólumbíu keyrðum við til dæmis dögum saman frá fjallahéruðum niður á slétturnar við Karabíahafið þar sem hitinn var mjög mikill, og í Egyptalandi þurftum við á hverjum morgni að aka langt inn í Austureyðimörkina á sérútbúnum jeppum til að komast að kvarsnámunum. En á sama tíma hefur þetta verið einn mikilvægasti hluti verkefnisins, að upplifa með eigin líkama þá staði, vegalengdir, loftslag og efnislegu veruleika sem liggja að baki þeirri tækni sem við notum daglega.“

Ljósmynd: Lea Hopp

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026