Rut Arnfjörð Jónsdóttir leikmaður KA/Þórs var í gær valin besta handknattleikskona ársins af Handknattsleikssambandi Íslands. Rut fór fyrir liði KA/Þórs á árinu sem varð Íslands-, Bikar- og Deildarmeistari auk þess sem að hún spilaði sinn 100 landsleik fyrir Íslands hönd á árinu.
Rut skoraði 87 mörk í 14 deildarleikjum fyrir KA/Þór á síðustu leiktíð og var valin besti sóknarmaður og besti leikmaður Olísdeildar kvenna auk þess að fá Sigríðarbikarinn sem mikilvægasti leikmaður deildarinnar valinn af þjálfurum.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Rut sem er fyrirliði íslenska landsliðsins hefur nú leikið 104 landsleiki og skorað í þeim 215 mörk. Þetta er í annað sinn sem Rut hreppir nafnbótina handknattleikskona ársins en hún var síðast valin árið 2013.










