Landhelgisgæsla Íslands hefur meinað lúxussnekkjunni La Datcha að leggja að höfn á Akureyri. Ákvörðunin byggir á þvingunaraðgerðum íslenskra stjórnvalda vegna innrásar Rússa í Úkraínu, en samkvæmt reglugerð er skipum sem skiptu úr rússneskum fána yfir í annað fánaríki eftir 24. febrúar 2022 óheimill aðgangur að höfnum á EES-svæðinu.
Snekkjan, sem nú siglir undir fána Panama, var á leið frá Istanbúl til Akureyrar með 26 manns um borð. Við athugun Landhelgisgæslunnar kom í ljós að skipið sigldi undir rússneskum fána fram í september 2022. Í kjölfarið var skipstjóranum tilkynnt um komubannið. Snekkjan er nú staðsett í Eyjafirði og er varðskipið Freyja þar til eftirlits. Rúv, greindi frá.
Vísir greindi frá að snekkjan væri La Datcha sem er í eigu rússneska auðmannsins Oleg Tinkov, stofnanda Tinkoff-bankans. Tinkov hefur áður verið dæmdur fyrir skattsvik í Bandaríkjunum en er jafnframt þekktur gagnrýnandi Vladímírs Pútín og innrásarinnar í Úkraínu. Landhelgisgæslan og utanríkisráðuneytið vinna nú sameiginlega að úrlausn málsins.










