MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Rúmum 27 milljónum úthlutað til Öldrunarheimila Akureyrar

Eftir Ingólfur Stefánsson·
1548863327_1548859834_img_3350
kaffid.is

Heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur úthlutað 495 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra til uppbyggingar í öldrunarþjónustu og komu rúmlega 27 milljónir í hlut Öldrunarheimila Akureyrar. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

Öldrunarheimili Akureyrar fengu úthlutað til endurbóta í eldhúsum, endurnýjunar síma- og sjúkrakallskerfis og uppsetningar á lyftu í Víðihlíð og Furuhlíð.

Hæstu framlögin úr sjóðnum runnu að þessu sinni til endurgerðar hjúkrunarrýma á gamla Sólvangi í Hafnarfirði og til uppbyggingar þjónustumiðstöðvar við Sléttuveg í Reykjavík. Aðrar úthlutanir úr Framkvæmdasjóði aldraðra voru til smærri viðhaldsverkefna á hjúkrunarheimilum víðsvegar um landið.

Tengdar greinar

Uppfært: 22. apríl 2026