Rúmlega 30 milljóna króna rannsóknarstyrkur til HA

Háskólinn á Akureyri hefur hlotið um 200 þúsund evrur, jafnvirði um 30 milljóna króna, í alþjóðlegt rannsóknarverkefni innan Northern Periphery and Arctic (NPA) áætlunarinnar. Heildarfjármögnun verkefnisins nemur rúmlega 1 milljón evra. Rannsóknaraðilar frá Íslandi, Finnlandi og Írlandi vinna saman að þróun nýrra lausna sem eiga að bæta aðgengi að heilbrigðisþjónustu í dreifbýli og á norðurslóðum. Fjallað er um verkefnið á vef Háskólans á Akureyri í dag.
Verkefnið nefnist PRESAFE (Safety, Sustainability and Accessibility in Remote Nurse Prescribing across NPA Regions) og er leitt af Háskólanum í Austur-Finnlandi. Fyrir hönd Háskólans á Akureyri stýrir þátttökunni Gísli Kort Kristófersson, sérfræðingur í geðhjúkrun og prófessor við Hjúkrunarfræðideild. Aðrir samstarfsaðilar eru University of Limerick á Írlandi og heilbrigðisyfirvöld í Finnlandi.
„Miðað við almenna þróun hjúkrunar á Íslandi og sterka stöðu hennar hér á landi erum við furðulega stutt komin með víkkað starfssvið, en þróun þess og fjarheilbrigðisþjónustu eru lykilþættir í að jafna gæði, öryggi og aðgengi að heilbrigðisþjónustu fyrir alla Íslendinga óháð búsetu,“ segir Gísli í samtali við vef HA.
Gert er ráð fyrir að verkefnið stuðli að styttri biðtíma eftir þjónustu, betri nýtingu sérþekkingar heilbrigðisstarfsfólks og fækki óþarfa ferðalögum sjúklinga. Með því skapast jafnframt tækifæri til að draga úr umhverfisáhrifum og efla sjálfbærni í heilbrigðisþjónustu án þess að skerða öryggi eða gæði þjónustunnar.
Verkefnið stendur yfir í 30 mánuði og felur meðal annars í sér þróun sameiginlegs þjónustulíkans, fræðslu fyrir hjúkrunarfræðinga, tilraunainnleiðingu í löndunum þremur og mat á áhrifum þess fyrir sjúklinga, heilbrigðisstarfsfólk og heilbrigðiskerfið.
„Háskólinn á Akureyri hefur byggt upp gríðarlega gott orðspor og sérþekkingu á að vinna og þróa styrki tengda norðurslóðum og var það ein af stóru ástæðunum fyrir því að þetta gekk svona vel,“ segir Gísli sem naut stuðnings sérfræðinga HA í Norðurslóðastyrkjum við að vinna þann hluta umsóknarinnar sem laut að þátttöku HA.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










