Rúða á Götubarnum brotnaði í slagsmálum – Sex í varðhaldi
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Sex einstaklingar eru í varðhaldi eftir slagsmál sem brutust út í miðbæ Akureyrar í kvöld. Einn var fluttur á sjúkrahús.
Sjónvarvottur segir að hinn slasaði hafi lent á rúðu á Götubarnum með þeim afleiðingum að hún brotnaði. Mikið blóð var á staðnum og sjónvarvottar lýsa ástandinu sem ískyggilegu.
Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni og frekari upplýsingar fást ekki í bili.
Tengdar greinar
Uppfært: 25. apríl 2026










