Kaffinu barst rétt í þessu ábending um að stærðarinnar rostungur hafi verið að spóka sig í góða veðrinu á flotbryggju við smábátabryggjuna við Sandgerðisdbót á Akureyri síðan í morgun.
Fréttir af dýrinu hafa gengið manna á milli á samfélagsmiðlum í dag og hafa Akureyringar fjölmennt til þess að bera það augum. Jón Jónsson er einn þeirra sem lagði leið sína á bryggjuna: „Það er alveg ótrúlegt að sjá svona dýr með eigin augum, sérstaklega á fyrsta degi aprílmánaðar.“
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Óljóst er hvaðan dýrið er komið, en ólíklegt er að það haldi lengi til á Akureyri, svo nú fer hver að verða síðastur að sjá það. Kaffið mælir því með því að lesendur flýti sér yfir þröskuldinn heima hjá sér og drífi sér niður að bryggju!






